Ekki er unnt að fullyrða að tölvupóstur haldist virkur án truflana ef samband við útlönd rofnar, þar sem þjónustan byggist að verulegu leyti á skýjalausnum sem reknar eru utan Íslands. Því er utanríkisráðuneytið í samstarfi við Farice að vinna að tengingu varaleiðar um gervihnetti sem nýtast myndi ef algjört rof yrði á gagnaleiðum um sæstrengi.
Þetta kemur m.a. fram í svari Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra við fyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur alþingismanns Sjálfstæðisflokksins um stafrænt fullveldi Íslands, en svar ráðherrans er birt á vef Alþingis.
Ráðherrann segir þó í svarinu að afrit gagna séu til á Íslandi í sameiginlegum skýjageirum UMBRU, sem er þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, en slík afrit styðji við endurreisn þjónustunnar. Því sé ljóst að það myndi taka tíma að koma henni að fullu í rekstur á nýjan leik, ef alvarleg röskun yrði. Málið snúist fyrst og fremst um viðbúnað, afritun og endurreisnargetu, ásamt forgangsröðun umferðar um varaleiðir, fremur en að unnt sé að tryggja órofa virkni ef alvarleg röskun yrði á sambandinu.
Fram kemur í svari ráðherrans að sameiginlegar skýjalausnir ráðuneytanna byggist að verulegu leyti á þjónustu bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft. Þó sé lögð áhersla á það af hálfu utanríkisráðuneytisins að gögn séu hýst og unnin innan Evrópu sem og að mikilvæg gögn séu jafnan afrituð hér á landi.
Við mat á lausnum þegar kemur að geymslu stafrænna gagna sé ekki eingöngu horft til þess í hvaða landi viðkomandi fyrirtæki sé skráð heldur fyrst og fremst litið til þess hvar gögn séu geymd, hvar vinnsla fari fram, hvaða aðgangsstýringar og verndarráðstafanir gildi og hvaða samnings- og persónuverndarumgjörð sé fyrir hendi.
Þá segir í svarinu að þau gögn sem geymd séu í skýjalausnum erlendra fyrirtækja á vegum ráðuneytisins séu fyrst og fremst gögn sem tengist almennri skrifstofu- og samvinnuvinnslu, svo sem tölvupóstur, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verði til í daglegri starfsemi.
Ekki hafi verið sett fram formleg skilgreining á stafrænu fullveldi í netmiðlun ráðuneytisins.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem … en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.