Kokkurinn og veitingahúseigandinn Hrefna Sætran hefur selt hlut sinn í veitingahúsunum Grillmarkaðinum, Trattoria og Rauttvín.
„Ég mun einblína áfram á rekstur Fiskmarkaðsins, Uppi bar, Skúla Craft Bar og Kampavínsfjélagsins,“ skrifar Hrefna á Facebook síðu sína.
„Það er gott að breyta til og einfalda lífið. Ég finn sterkt að mín ástríða liggur í að skapa framúrskarandi upplifun í mat og drykk og bjóða gæðavörur þegar fólk heimsækir okkur. Þessi hugsun endurspeglast íöllu sem við gerum, hvort sem það er á veitingastaðnum, á barnum, í víninu eða á miðlunum okkar.“
Guðlaugur Pakpum Frímannsson, Ágúst Reynisson og Hrefna áttu öll 33 prósent í Grillmarkaðinum en Hrefna hefur nú selt sinn hlut.
„Þetta eru spennandi tímamót og ég spennt að halda áfram þeirri skemmtilegu vinnu sem við höfum verið í síðustu ár með öllu því skapandi fólki sem ég fæ að vinna með. Svo eru framundan ótrúlega spennandi verkefni í gangi hjá okkur sem ég hlakka til að segja ykkur frá,“ skrifar Hrefna.