António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kallar eftir því að um 2.500 börn verði flutt frá Gasa tafarlaust og undir læknishendur. Ákallið kemur eftir fund hans með bandarískum læknum sem segja börnin annars eiga á hættu að deyja.
Guterres segist afar snortinn eftir fundinn með læknunum fjórum, sem allir störfuðu sem sjálfboðaliðar á Gasa.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gaf það út skömmu áður en vopnahlé hófst á svæðinu að flytja þyrfti um það bil 12 þúsund manns úr landi sem þannig væri ástatt um að þeir þyrftu á frekari læknisaðstoð að halda.
Þeirra á meðal eru 2.500 börn, að sögn Feroze Sidhwa, bráðaskurðlæknis frá Kaliforníu sem var við störf á Gasa frá 25. mars til 8. apríl í fyrra. Sidhwa segir sum barnanna þegar eiga skammt eftir ólifað en mörg séu í hættu á að deyja á næstu vikum ef þau fá ekki aðstoð.
Ayesha Khan, bráðalæknir við Stanford-háskóla, vann með mörgum börnum sem hafa misst útlimi en hvorki fengið gervilimi né nokkra endurhæfingu. Á blaðamannafundi nefndi hún tvær systur sem dæmi, sem höfðu bæði misst útlimi og foreldra sína.
Thaer Ahmad, bráðalæknir frá Chicago, sagði að samkvæmt vopnahléssamkomulaginu hefði átt að koma upp kerfi til að flytja þá á brott sem þyrftu frekari læknisaðstoð. Það hefði hins vegar ekki gerst.
Þá væri ekki ljóst að börn sem yrðu flutt á brott fengju að snúa aftur.