Veðurstofa Íslands uppfærði hættumat sitt í gær en nú er talin mikil hætta á gosopnun og hraunflæði innan Grindavíkur og norðaustan við bæinn á næstu tveimur vikum.
„Við bara þurfum að hækka okkar viðbúnað og auka vöktun hjá okkur og nú eru farnar að ganga fleiri bakvaktir hjá okkur og annað slíkt. Við vorum í dag með samráðsfund með ýmsum hagaðilum þar sem við vorum að fara yfir stöðuna þannig að allir væru tilbúnir að fara yfir sínar áætlanir.“
Viðvörunartíminn nokkrar mínútur
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur benti á það í gær að fyrirvarinn fyrir gos á svæðinu styttist með hverju gosinu sem verður. Víðir segir það áhyggjuefni en viðvörunartími gæti verið aðeins nokkrar mínútur.
„Plönin okkar núna eru að geta hafið rýminguna, sett lúðrana í gang og sent skilaboð til þeirra inn á hættusvæðinu á styttri tíma en áður,“ segir Víðir.
Gist í 30 til 60 húsum
Um 250 til 300 manns starfa í bænum á hverjum degi. Grindavíkurnefnd hyggst ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir eftir verslunarmannahelgi til að gera við vegi og lagnir í bænum og mun fólki í bænum fjölga við það. Kostnaður verkefnisins hleypur á nokkrum hundruðum milljónum króna.
Spurður hvort að það sé ábyrgt og skynsamlegt að hafa fólk í bænum þegar að gos gæti komið upp innan bæjarmarkanna segir Víðir að það sé öruggt að degi til.
„Það hefur sýnt sig að það gengur mjög fljótt að rýma að degi til. Við höfum meiri áhyggjur af þeim sem gista þarna. Það er gist í svona 30 til 60 húsum. Við höfum meiri áhyggjur af því.“
En aðgangurinn verður ekki takmarkaður enn frekar upp úr þessu?
„Ekki eins og staðan er núna, nei.“