Heimir stýrir Írum í fyrsta sinn á laugardaginn, gegn Englandi í Dublin, þegar liðin mætast í Þjóðadeildinni. Leikurinn verður sýndur á Vodafone Sport.
Rice og Grealish eru báðir fæddir og uppaldir á Englandi en eru af írskum ættum og spiluðu fyrir Írland.
Rice náði meira að segja þremur A-landsleikjum fyrir Íra áður en þessi 25 ára miðjumaður Arsenal skipti yfir í enska landsliðið þar sem hann hefur nú spilað 58 leiki. Grealish lék fyrir Írland upp í U21-landsliðið en hefur síðan leikið 36 A-landsleiki fyrir England.
John O‘Shea, aðstoðarmaður Heimis, hefur lítinn áhuga á að velta þeim Rice og Grealish fyrir sér miðað við svör hans í Irish Independent.
Alls konar hættur gegn silfurliði EM
„Við einbeitum okkur að okkur sjálfum og leikmönnunum sem vilja vera hér og eru hér. Það er svo einfalt,“ sagði O‘Shea.
„Hann [Rice] er ekki hérna. Hann er í enska hópnum svo það er tilgangslaust að ræða þetta,“ sagði O‘Shea og taldi ekki að nein sérstök áhersla yrði lögð á að eiga við Rice í leiknum:
„Það þarf að eiga við marga hluti gegn þessum ensku leikmönnum. Þegar maður mætir liði sem var að spila úrslitaleik á EM þá veit maður að það eru margs konar hættur og möguleikar í stöðunni. Ég held að allir sjái að sama hvaða ellefu leikmenn þeir byrja með á vellinum, og miðað við þann hóp sem þeir hafa til að gera breytingar, þá verðum við að hafa fulla einbeitingu við að stöðva þá en svo er enn mikilvægara að við völdum þeim vandræðum sjálfir,“ sagði O‘Shea.
England hefur misst út sterka leikmenn vegna meiðsla og veikinda, og verður til að mynda án Cole Palmer, Phil Foden, Ollie Watkins og Jude Bellingham.